Skólareglur Egilsstaðaskóla endurskoðaðar

Allir grunnskólar eiga að setja sér skólareglur þar sem er kveðið á um almenna umgengni, samskipti, stundvísi, ástundun náms og heilbrigðar lífsvenjur. Í reglunum þarf að koma fram hvernig bregðast skal við brotum á þeim.
Í Egilsstaðaskóla hefur staðið yfir endurskoðun á skólareglum. Þar hefur verið tekið mið af hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu sjálfsaga og tengslamiðaðri nálgun Heillaspora, þar sem er lögð áhersla á velferð, öryggi og virka þátttöku barna. Áhersla er lögð á jákvæð samskipti og virðingu fyrir öðru fólki og umhverfi.

Í könnunum Skólapúlsins hefur komið fram að bæði nemendum og foreldrum & forsjárfólki hefur þótt agi of lítill í skólanum. Í svörum nemenda kemur fram að kennarar þurfi að bíða lengi eftir að nemendur róist, það sé oft hávaði og óróleiki í tímum og að nemendur hlusti ekki á það sem kennarinn segir. Tæplega 50% svarenda í foreldrakönnun finnst agi í skólanum of lítill.

Það er því mikilvægt að í skólareglum séu skýrir rammar fyrir nemendur og starfsfólk svo hægt sé að bregðast við frávikum. Umsjónarkennarar eru þessa dagana að yfirfara reglurnar með nemendum þannig að öllum séu þær vel kunnar.

Skólareglur Egilsstaðaskóla eru aðgengilegar á heimasíðunni, undir flipanum Skólinn - Skólareglur