Markmið
- Að skapa börnunum öruggt og uppeldislega jákvætt umhverfi utan hefðbundins skólatíma.
- Að leitast við að dvölin í Frístund verði róleg og heimilisleg.
Tímafjöldi og mætingar
Foreldrar & forsjáraðilar skrá börn sín í Frístund að hausti. Skráningin gildir allt skólaárið. Ef foreldrar / forsjáraðilar vilja breyta skráningunni þarf senda nýja umsókn og fellur þá sú fyrri úr gildi. Ef á að segja upp plássi í Frístund þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti til umsjónarmanneskju Frístundar, fristund@mulathing.is
Ábendingar og/eða fyrirspurnir er hægt að senda í tölvupósti.
Gefinn er kostur á að nemendur séu skráðir í Frístund ákveðna daga, fyrir og/eða eftir skóla. Tekið er tillit til foreldra í vaktavinnu. Sé um skráningu eftir skóla að ræða þá verður að skrá nemanda frá kl.13:50-16:00. Greitt er fyrir hvern mánuð í senn.
Frístund er lengdur skóladagur og fylgir alfarið skóladagatali varðandi skólafrí, starfsdaga o.fl. Opnunartími er kl. 8.00 - 8.40 og kl. 13.50 - 16.00.
Forstöðumanneskja Frístundar:
Sími Frístundar er 897-0605
Netfang: fristund@mulathing.is
Sótt er um Frístund með því að smella hér.