Sköpun

Í sköpun skiptir sköpunarferlið ekki síður máli en afrakstur verksins. Í öllu skólastarfi er æskilegt að sjá sköpunargleði, frumkvæði og frumleika, líkt og vinnubrögð í listsköpun einkennast svo oft af. Í sköpuninni felst hagnýting hugmynda og mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Skapandi skólastarf felur m.a. í sér að nemendur hafi tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið, s.s. námsefni, skipulag, námsmat, mötuneytismál, skemmtanir o.fl. Litið er á mistök sem tækifæri til að læra af reynslu og nýir miðlar og ný tækni eru nýtt á áhugaverðan og skapandi hátt. Verk nemenda eru sýnileg og geta orðið öðrum nemendum og kennurum innblástur og hvatning. Sköpun snýst ekki eingöngu um nýjar og frumlegar hugmyndir, heldur hagnýtingu þess sem fyrir er. Hún snýst þannig um lausnir viðfangsefna og leit að nýjum möguleikum. Sköpun er mikilvægur grunnur að því að horfa til framtíðar og móta sér framtíðarsýn, taka þátt í mótun lýðræðissamfélags og skapa sér hlutverk innan þess.