Haustfundur foreldra nemenda í 6.-10.bekk

 Árlegur foreldrafundur skólans fyrir foreldra í 6.-10.bekk verður mánudaginn 23.september kl. 17:30-19:00

Á fundinum mun Þorgrímur Þráinsson verða stutt erindi: "Er lífið leikur einn?" um samstarf foreldra og skóla um uppeldi barna. Byrjað verður sameiginlega á sal þar sem Þorgrímur mun flytja sitt erindi, en síðari hluta fundarins munu foreldrar í hverjum árgangi funda með umsjónarkennurum í bekkjarstofum.

Haustfundir með foreldrum eru hluti af Olweusarverkefninu í Egilsstaðaskóla.
Munum að verkefnið byggir fyrst og fremst á viðhorfum og viðbrögðum þeirra sem fullorðir eru, þ.e. starfsmanna og foreldra. Þess vegna er þátttaka allra foreldra/forráðamanna lykilatriði að jákvæðum árangri.

Skólinn væntir þess að allir foreldrar mæti á fundinn.