Ég er UNIK foreldrafræðsla

Mánudaginn 25.mars kl. 17:00 mun Aðalheiður SIgurðardóttir halda fyrirlestur fyrir foreldra og tala um eitt af því mikilvægasta í lífinu - að vera samþykktur eins og maður er.

Aðalheiður hefur á síðastliðnum 4 árum haldið fyrirlestra í skólum, leikskólum, fyrir foreldrahópa og í samráði við Einhverfu-og ADHD samtökin, bæði á Íslandi og í Noregi.

Í fyrirlestrinum segir hún frá sínu dásamlega ferðalagi sem einhverfumamma; frá vanmættis til viðurkenningar og hvernig frábært samstarf við skólann okkar varð til þess að dóttir hennar eignaðist ny?tt lif.

Fyrirlesturinn passar fyrir alla og er ætlað að veita innblástur, kenna okkur að hugsa út fyrir ramman, auka umburðalyndi og sjá alla kostina sem fjölbreytileikinn hefur í för með sér.

Skólinn í samstarfi við foreldrafélagið og aðra grunnskóla á Héraði standa fyrir foreldrafundinum. .
Foreldrar eru hvattir til þess að láta ekki þetta tækifæri fram hjá sér fara.