Mánudaginn 2. nóvember verður haldin vinnustofa um gerð Farsældarsáttmála, kl. 17.00 í matsal Egilsstaðaskóla.
Sigurjón Már Fox Gunnarsson frá Heimili og skóla leiðir okkur í gegnum vinnustofuna og styður við samtalið.
Á vinnustofunni fá foreldrar tækifæri til að ræða saman um það sem skiptir máli í uppeldi barnanna okkar, svo sem samskipti, vináttu, skjánotkun, félagslíf og sameiginleg viðmið.
Markmiðið er að efla samstöðu foreldra og skapa umhverfi þar sem öllum börnum líður vel. Frekari upplýsingar um Farsældarsáttmálann má finna hér:
https://heimiliogskoli.is/fraedslur-i-bodi/hvad-er-farsaeldarsattmalinn-og-til-hvers-er-hann/
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta til að setja sáttmálann saman!