Á starfsdegi var skólanum afhent hjartastuðtæki frá Kvenfélaginu Bláklukku.
Það voru fulltrúar kvenfélagsins, þær Jóhanna Jörgensdóttir formaður og Málfríður Hannesdóttir, sem afhentu skólastjóra gjöfina á starfsmannafundi. Á skyndihjálparnámskeiði, sem starfsfólk skólans sótti í vetur, var rætt um nauðsyn þess að geta brugðist fljótt við skyndilegum veikindum á stórum vinnustað eins og Egilsstaðaskóla en þar starfa ríflega 500 manns á aldrinum 6 - 67 ára á hverjum degi.
Starfsfók skólans er afar þakklátt kvenfélagskonum fyrir þessa veglegu og góðu gjöf.