Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, sérkennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá Múlaþingi, var á dögunum tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 í flokknum framúrskarandi kennsla. Jónína Lovísa er tilnefnd fyrir einstakt framlag til menntunar, velferðar og farsældar barna og ungmenna.
Jónína Lovísa hefur starfað við Egilsstaðaskóla í 15 ár og hefur á síðustu árum sérhæft sig í þjálfun í félagsfærni og vinnu með einhverfum börnum. Hún hefur miðlað víðtækri þekkingu sinni til samstarfsfólks en hún hefur m.a. sótt námskeið um Social thinking eða félagsfærni til Bandaríkjanna svo dæmi sé tekið.
Í tilnefningunni segir að í störfum sínum hafi Jónína lagt megináherslu á að mynda traust og mæta nemendum þar sem þeir eru staddir með virðingu sem kalli meðal annars á að vera tilbúin að fara ólíkar leiðir að markmiðum. Þekking hennar, reynsla og leiðtogahæfni hafi haft jákvæð áhrif á nemendur, samstarfsfólk og skólasamfélagið í heild. „Jónína er fyrirmynd í starfi, leiðtogi á sínu sviði, sannkallaður talsmaður farsældar barna. Starf hennar hefur haft djúpstæð og varanleg áhrif á ótal nemendur, fjölskyldur og samstarfsfólk.“
Íslensku menntaverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember.