... því lífið það er heimsins besta gotterí!

Í leikritinu Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson koma fyrir þekktar persónur úr ævintýrum; úlfurinn, Mjallhvít, vonda stjúpan og dvergarnir en þeir lýsa einmitt lífinu sem heimsins besta gotteríi.
Það var mikið gotterí framreitt fyrir áhorfendur á sýningu miðstigs þar sem Skilaboðaskjóðan var sett á svið. Um 120 börn tóku þátt í sýningunni, sem tæknifólk, sviðsfólk, leikarar, söngvarar, hljóðfæraleikarar, leikmyndasmiðir, búningastjórar o.m.fl. Undirbúningur hefur staðið frá áramótum í umsjón umsjónarkennara á miðstigi og aðkomu list- og verkgreinakennara. Síðustu vikur hafa verið stífar æfingar. Margir sigrar vinnast í þessari vinnu; sumir stíga út fyrir þægindarammann og stíga á svið, sumir syngja í fyrsta sinn fyrir framan fullan sal en ferlið er lærdómur og þjálfun fyrir alla sem taka þátt.
Þáttur tæknifólks er ómetanlegur því þeir nemendur sem taka að sér að stjórna hljóði og ljósum þurfa að læra á flókinn tæknibúnað. Eldri nemendur kenna þeim yngri þannig að þekkingin flyst milli árganga.
Kennarar Tónlistarskólans á Egilsstöðum tóku þátt í tónlistarflutningi ásamt nemendum í tónlistarskólanum undir stjórn Berglindar Halldórsdóttur. Öllum flytjendum var afar vel fagnað í lok sýningarinnar og krakkarnir fóru sátt heim.