Nemendur í 9. bekk hafa undanfarið kynnt sér stríðsárin og áhrif þeirra bæði á Ísland og heiminn í heild. Krakkarnir unnu lokaverkefni sem þau sýndu foreldrum og nemendum á elsta stigi.
Verkefnin voru fjölbreytt og fróðleg, bæði textar og skapandi verkefni. Líkan af flugvélinni sem varpaði kjarnorkusprengjunni á Hirosima, kjarnorkusprengjan sjálf, tíska og tónlist stríðsáranna og líkan af skotgröfum var meðal þess sem var til sýnis. Í maí heimsækja nemendur Stríðsárasafnið á Reyðarfirði og er það lokahnykkurinn á umfjöllun um stríðsárin.
Meðfylgjandi myndir sýna fjölbreytt verkefni.