Eitt af föstum verkefnum í skólastarfinu er Stóra upplestrarkeppnin. Undirbúningur keppninnar, sem reyndar má frekar kalla upplestrarhátíð, hefst formlega á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember ár hvert. Undirbúningurinn felst í því að nemendur í 7. bekk æfa sig í upplestri og síðan er haldin bekkjarkeppni þar sem allir nemendur bekkjarins lesa upp valinn texta og ljóð. Fengnir eru dómarar úr hópi starfsfólks skólans sem velja 15 nemendur til að halda áfram í svokallaða skólahátíð upplestrarkeppninnar. Í þeim hluta eru fengnir aðilar utan skólans til að dæma frammistöðu nemenda og þar eru valdir fimm nemendur til þátttöku í lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar sem er skipulögð af Skólaþjónustu Múlaþings og í henni taka þátt nemendur í 7. bekk úr öðrum skólum í Múlaþingi og frá Vopnafirði.
Það er alltaf gaman að sjá framfarirnar sem nemendur taka á æfingatímanum og allir búa að þessari þjálfun til lengri tíma.