Í næstu viku hefst fyrirlögn á stöðu- og framvinduprófum sem eru hluti af matsferli, nýju námsmatskerfi. Prófin eru lögð fyrir nemendur í 4. - 10. bekk í Egilsstaðaskóla en þau eru skyldubundin fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk. Prófin eru opin á tímabilinu 2. - 27. mars og búið er að ákveða prófdaga fyrir hvern árgang. Upplýsingar um tímasetningar hafa verið sendar til foreldra og forsjáraðila.
Það er mikilvægt að hafa í huga að stöðu- og framvindupróf eru einungis lögð fyrir í lesskilningi og stærðfræði og því gefa prófin aðeins mynd af stöðu nemenda á afmörkuðum sviðum. Nemendur verða ekki undirbúnir fyrir prófin á annan hátt en með því að kynna þeim form prófanna og þau hjálpartæki sem prófakerfið innifelur. Niðurstöðurnar nýtast fyrir kennara til að koma betur til móts fyrir þarfir hvers og eins í lesskilningi og stærðfræði.
Skóladagar nemenda þá daga sem prófin eru lögð fyrir eru að öðru leyti hefðbundnir enda eiga flestir nemendur að geta lokið próftökunni á 40 mínútum. Prófin eru þó opin í 80 mínútur og því er lengri próftími innbyggður í prófkerfinu.
Hægt er að fara á heimasíðu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu til að fá meiri upplýsingar um matsferil og stöðu- og framvinduprófin.