Sterkir hópar

Ein af frumþörfum manneskjunnar er að tilheyra og finna til öryggis í hóp. Í dag er skóladagur barna í Egilsstaðaskóla helgaður því að styrkja og efla hópa með margvíslegum samvinnuverkefnum og þrautum.
Samráðshópar árganga hófu undirbúning fyrir verkefni dagsins á námskeiði með Vöndu Sigurgeirsdóttur í ágúst. Skólinn iðar af líf, bæði inni og úti, og krakkarnir vinna að óhefðbundnum viðfangsefnum eins og að stíga í takt, safna í bekkjarsáttmála, smíða báta, spila, leika með Lego, syngja saman og ýmislegt fleira.
Myndirnar sýna einhver af þeim viðfangsefnum sem krakkarnir hafa fengist við og það er augljóst að verkefni dagsins höfðuðu til margra nemenda.