Skrifstofa skólans opnuð eftir sumarfrí

Skrifstofa Egilsstaðaskóla hefur opnað eftir sumarfrí. Endurmenntunardagar kennara eru 10. - 14. ágúst og starfsdagar hefjast þ. 15. ágúst. Skólastarf hefst með nemendaviðtölum þriðjudaginn 25. ágúst. Foreldrar og forsjáraðilar munu fá sendar upplýsingar um fyrirkomulag viðtalanna og tímasetningar.