Skólastarfið í september

Það eru fjölbreytt verkefni hjá krökkunum okkar í september. Við höfum fengið gesti í heimsókn í vikunni, þá Þorgrím Þráinsson og Ævar Þór Benediktsson rithöfunda. Þeir lásu báðir uppúr bókum sem þeir eru að gefa út og Þorgrímur ræddi einnig við nemendur í 10. bekk um lífið og tilveruna.
Nemendur í 6. bekk sóttu sirkusnámskeið í Sláturhúsinu en það var hluti af BRAS, listahátíð barna á Austurlandi. Hópnum var skipt í tvennt og á meðan annar hópurinn var á námskeiði fóru hinir út í ruslatínslu, en það var reyndar dálítíð blaut útivist í gær.
Nemendur í 10. bekk taka þátt í rannsókn á mataræði og þrjá daga í þessari viku eru þrír rannsakendur frá Háskóla Ísland í húsi að taka viðtöl við nemendur. Rannsakendur koma aftur í nóvember og fylgja rannsókninni eftir.
Fimmtudaginn 24. september er öllum nemendum í 9. og 10. bekk boðið á Starfamessu í Neskaupstað þar sem kynnt verða störf og starfsleiðir á Austurlandi. Það verður eflaust kærkomið fyrir krakkana að fá svo frí á föstudaginn en þá funda kennarar af öllu Austurlandi á haustþingi KSA.