Skólaslit og útskrift 10. bekkjar vorið 2026

Egilsstaðaskóla var slitið í 78. skipti 10. júní í þremur athöfnum.

Á skólaslitum 1. - 9. bekkjar voru tónlistaratriði flutt af nemendum í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum auk þess sem skólasöngurinn var fluttur eftir nokkurt hlé en höfundur textans, Sigþrúður Sigurðardóttir, lætur af störfum í vor eftir margra ára störf við skólann. Afhent voru verðlaun fyrir bestu myndir í ljósmyndamaraþoni sem 8. og 9. bekkur tók þátt í á vordögum. Nemendur fengu svo vitnisburð sinn afhentan og héldu að því loknu út í sumarfrí.
Um kvöldið var útskrift 10. bekkjar en þar voru flutt ávörp og tónlistaratriði. Viðar Jónsson skólastjóri talaði til nemenda sem voru að útskrifast og þakkaði þeim gefandi samstarf. Árni Stefán Ólafsson formaður Nemendaráðs flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og umsjónarkennarar 10. bekkjar ávörpuðu samkomuna og minntust liðinna stunda með bekknum.
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur í námi, dugnað, frumkvæði, framfarir, seiglu og prúðmennsku. Nemendur færðu 10. bekkjarteyminu gjafir og þakkir fyrir samveruna.
Hljómsveit skipuð útskriftarnemendum fluttu 3 lög við afar góðar undirtektir viðstaddra.
Starfsfólk Egilsstaðaskóla þakkar nemendum og forráðamönnum þeirra fyrir samstarfið á skólaárinu og óskar þess að allir njóti sumarsins sem best.