Skólabyrjun

Skólabyrjun nálgast óðfluga og örugglega margir orðnir spenntir fyrir því að byrja í skólanum á ný. Nýtt skólaár handan við hornið og styttist í að skólinn iði af lífi. Síðustu daga hafa skólastjórnendur unnið að því að skipuleggja vetrarstarfið sem er farið að taka á sig mynd.

Skólasetning Egilsstaðaskóla fer fram þriðjudaginn 23. ágúst. Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í sal en síðan munu nemendur ásamt foreldrum hitta umsjónarkennara í sínum heimastofum.

Kl. 10:00 Nemendur í 1.-3. bekk

Kl. 10:45 Nemendur í 4.-6. bekk

Kl. 11:30 Nemendur í 7.-10 bekk

Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar verða jafnframt boðaðir í viðtal með umsjónarkennara í skólabyrjun.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá, hjá öllum bekkjum, miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 8:50. Frístund tekur til starfa þriðjudaginn 23. ágúst fyrir nemendur í 2.-4. bekk og miðvikudaginn 24. ágúst fyrir nemendur í 1. bekk.

Umsjónarkennarar skólaársins 2022-2033

1. bekkur : Berglín Sjöfn Jónsdóttir, Jóhanna Björk Magnúsdóttir og Sigrún Þöll Hauksdóttir Kjerúlf

2. bekkur : Drífa Magnúsdóttir, Elva Rún Klausen og Freyja Kristjánsdóttir

3. bekkur : Auður Dögg Pálsdóttir, Halldóra Björk Ársælsdóttir og Védís Hrönn Gunnlaugsdóttir

4. bekkur : Ingibjörg Sóley Guðmundsdóttir og Lovísa Hreinsdóttir

5. bekkur : Erla Gunnlaugsdóttir og Hlín Stefánsdóttir

6. bekkur : Carola Björk Tschekorsky Orloff og Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar

7. bekkur : Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir og Valgeir Sveinn Eyþórsson

8. bekkur : Sandra Ösp Valdimarsdóttir og Sæbjörn Guðlaugsson

9. bekkur : Fjóla Rún Jónsdóttir og Jón Magnússon

10. bekkur : Helga Jóna Svansdóttir og Þórunn Guðgeirsdóttir