Sjálfsmatsskýrsla fyrir skólaárið 2025 - 2026

Sjálfsmatsskýrsla fyrir skólaárið 2025 – 2026 hefur verið kynnt fyrir starfsfólki, í skólaráði og í fjölskylduráði Múlaþings.
Skýrslan byggir á niðurstöðum Skólapúlsins og Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, niðurstöðum úr stöðu- og könnunarprófum matsferils auk lesfimiprófa, upplýsinga um þróunarstarf í skólanum og árangur nemenda á ýmsum sviðum.
Helstu niðurstöður eru þær að börnum í Egilsstaðaskóla líður almennt vel, bæði á yngri stigum og eldri. Í 2. – 5. bekk segjast 83% þeirra vera stundum eða oft hamingjusöm í skólanum og tæplega 90% finnst stundum eða oft vel hugsað um þau í skólanum. Ánægja barna af lestri í þessum árgöngum eykst lítillega milli ára en strákar hafa mun minni ánægju af lestri en stelpur og eru þeir talsvert undir landsmeðaltali.
Nemendum í 6.- 10. bekk líður betur en á síðasta skólaári og heldur betur en jafnöldrum á landinum. Þessir nemendur samsama sig vel við nemendahópinn og stærstum hluta finnst þeir vera a.m.k. jafn mikils virði og aðrir. Hins vegar minnkar þrautseigja í þessum hópum og er nokkuð undir landsmeðaltali. Nemendur telja aga minni en viðmiðunarhópar. Tíðni eineltis eykst milli ára og flest tilfelli eru meðal stráka í 6. og 7. bekk.

Í Íslensku æskulýðsrannsókninni eru niðurstöður á svipuðum nótum og í Skólapúlsinum. Könnunin er lögð fyrir nemendur í 4. – 10. bekk. Líðan er almennt góð, stærstum hluta barnanna líður vel í kennslustundum og frímínútum en í 4. og 5. bekk finnst 40% nemenda of mikill hávaði í kennslustundum. Í 6.- 10. bekk segjast 26% svarenda hafa lent í slagsmálum. Líðan stelpna í 6. – 7. bekk versnar milli ára
Foreldrakönnun Skólapúlsins var sent út í febrúar. Þátttaka í könnuninni var aðeins 74% en æskilegt þykir að þátttökuhlutfallið sé að minnsta kosti 80%. Það eru helst foreldrar barna á yngsta stigi sem svara könnuninni.
Skv. svörum telja foreldrar að líðan barna í frímínútum sé verri en árið áður og er mælitalan nokkuð lægri en hjá samanburðarhópum. Fleiri foreldrar telja hins vegar að börnum þeirra líði vel í skólanum og er marktækur munur milli ára.
Foreldrar telja almennt að agi í skólanum sé ekki nægur. Tími, sem foreldrar aðstoða börn sín við heimanám, þmt. heimalestur, er umtalsvert minni en hjá samanburðarhópum og minnkar talsvert frá fyrra skólaári.
Í skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum stöðu- og könnunarprófa MMS og sömuleiðis niðurstöður úr lesfimiprófum. Árangur barna í Egilsstaðaskóla er svipaður og hjá viðmiðunarhópum. Lesfimiprófin voru lögð fyrir nær alla nemendur í 1. – 10. bekk og er afar ánægjulegt að sjá hve vel nemendur í 10. bekk standa sig en 47% þeirra eru í efsta mælitölubili.
Í lok skýrslunnar er farið yfir það þróunarstarf sem er unnið að í Egilsstaðaskóla. Það starf er mikilvægur þáttur í öllu umbótastarfi skólans.
Sjálfsmatsskýrslan er aðgengileg til lestrar á heimasíðunni.

Tengill á skýrsluna hér