Sterk tengls barna og foreldra eru lykilundirstaða velferðar barna. Sterk og góð tengsl barna, foreldra þeirra og forsjárfólks og starfsfólks skóla eru mikilvægur þáttur í að stuðla að velferð barna og velgengni í námi (sjá m.a. rannsóknina Félagstengsl íslenskra barna og ungmenna frá 2020 o.fl.). Sem liður í því að styrkja tengsl fólks sem myndar skólasamfélag Egilsstaðaskóla var kallað til samverustundar í vikunni þar sem foreldrar og forsjárfólk, ömmur og afar, frænkur og frændur mættu með börnunum og tóku þátt í leikjum og þrautum. Það voru umsjónarkennarar og samráðsteymi árganga sem undirbjuggu dagskránna en hún byggði meðal annars á verkefnum sem kennarar hafa fengið þjálfun í á námskeiðum Vöndu Sigurgeirsdóttur.
Um allt hús mátti sjá börn og fullorðna spila, dansa, leika, kubba, teikna, skrifa svo dæmi séu nefnd. Í sumum árgöngum sátu foreldrar og börn og lögðu grunn að bekkjarsáttmála og á öðrum stöðum gerðu krakkarnir tillögur að því sem þau höfðu áhuga á að bekkjartenglar gerðu með hópnum. Mikið fjör var þar sem hóparnir dönsuðu af krafti og líklegt að margir minnist tilþrifa foreldra á dansgólfinu!
Starfsfólk Egilsstaðaskóla er innilega þakklátt þeim sem komu í skólann þetta síðdegi / kvöld og voru með í að skapa einstaka stemningu.