Mamma Mia

Fyrsta árshátíð Egilsstaðaskóla þetta skólaár var uppsetning nemenda á elsta stigi á söngleiknum Mamma Mia. Um 60 nemendur komu að uppsetningunni en auk þess komu að henni kennarar og nemendur Tónlistarskólans á Egilsstöðum. Þær Margrét Lára Þórarinsdóttir og Berglind Halldórsdóttir stýrðu hljómsveit sem spilaði undir í nokkrum lögum.
Æfingar hafa staðið yfir síðan í september og samhliða hefur verið unnið að sviðsmynd, valdir búningar og söngur æfður. Nemendur sjá auk þess um ljós og hljóð í sýningunni og þar þarf að vanda til verka þar sem læra þarf á tæknibúnaðinn og vera svo viðbúin öllu í sjálfri sýningunni, þegar tækin láta ekki alveg að stjórn.
Húsvörður Egilsstaðaskóla, Þórarinn Bjarnason, aðstoðaði á margan hátt við smíðar og útréttingar.
Hrefna Hlín Sigurðardóttir var leikstjóri sýningarinnar og allsherjar reddari eins og undanfarin ár. Þær Ragna Sif Sigurdórsdóttir og Stefanía Magnúsdóttir voru aðstoðarleikstjórar og fylgdu hópnum í gegnum æfingaferlið. Kennarar og stuðningsfulltrúar á elsta stigi hafa staðið við bakið á krökkunum í ferlinu og verið til aðstoðar á margvíslegan hátt. 
Leiksýning verður til með samhentu átaki margra aðila og oft koma leyndir hæfileikar fólks í ljós í verkefnum sem þessum. Það er því ávallt ánægjulegt að horfa á krakkana uppskera eftir margra vikna vinnu og finna viðbrögð áhorfenda.