Lokaverkefni nemenda í 10. bekk

Í maí unnu nemendur í 10. bekk að lokaverkefnum sínum. Ferlið hefst á hugmyndavinnu sem svo þróast yfir í lokaafurð. Krakkarnir vinna verkefnið bæði í skólanum og heima hjá sér enda þurfa sumir aðstöðu og verkfæri í gerð stærri verkefna.
Á sýningunni var augljóst að krakkarnir höfðu lagt mikla vinnu í verkefnin sín og að þar lá mikill metnaður að baki.
Við óskum krökkunum í 10. bekk til hamingju með glæsileg lokaverkefni!