Lokaverkefni 10. bekkinga

Undir lok 10.bekkjar vinna allir nemendur lokaverkefni að eigin vali byggð á áhugasviði. Vinnuferlið tekur u.þ.b. tvær vikur og vinna krakkarnir bæði í skólanum eða heima hjá sér eftir því sem best hentar. Á hverjum degi koma þau í skólann og gera grein fyrir stöðu verksins og fá leiðbeiningar um framhaldið. Verkefnin voru til sýnis fyrir aðra nemendur og foreldra um miðjan maí.  Hér má sjá umfjöllun um lokaverkefnin vorið 2023.