Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2026

Lesarar úr grunnskólum á norðursvæði Austurlands, frá Vopnafirði að Seyðisfirði, komu saman í Egilsstaðakirkju á Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í ár.

Það var hátíðleg stund þegar 12 lesarar fluttu texta úr Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson. Krakkarnir fluttu svo ljóð sem öll fjölluðu um fugla og loks ljóð að eigin vali. Þrír dómarar dæmdu lesturinn og kynntu úrslitin en Inga Hrafney Stefánsdóttir hlaut fyrsta sæti og í öðru og þriðja sæti urðu drengir úr Brúarásskóla, þeir Manuel Arnar Logi Ragnarsson og Fróði Hlynsson. Vinningshafar fengu viðurkenningarskjal, bókagjöf og peningaverðlaun fyrir þátttöku sína í keppninni. 

Nemendur í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum fluttu tónlistaratriði á meðan dómarar réðu ráðum sínum.