Það var gríðarleg spennandi að fylgjast með keppendum Egilsstaðaskóla í Skólahreysti á Akureyri. Sex krakkar skipuðu lið skólans sem bar sigur úr býtum í sínum riðli í undanúrslitum. Þar með tryggðu þau sér rétt til keppni í úrslitakeppni Skólahreysti sem fer fram í Reykjavík þ. 23. maí.
Hópur nemenda tók þátt í Skólahreystivali sem fór af stað eftir áramótin undir leiðsögn Adams Eiðs Ásgeirssonar íþróttakennara og Kristófer Páls Viðarssonar stuðningsfulltrúa og styrktarþjálfara. Í apríl fór fram úrtakskeppni þar sem kom í ljós hverjir skipuðu keppnisliðið. Þau Andrea Ýr Benediktsdóttir, Aron Daði Einarsson, Guðfinnur Snær Þorlaugsson, Hinrik Nói Guðmundsson og Kristín Indíana Káradóttir úr 10. bekk og Edda Pétursdóttir úr 9. bekk voru fulltrúar Egilsstaðaskóla.
Liðið hélt til Akureyrar strax að aflokinni Háskólalestinni ásamt stórum hópi stuðningsfólks, bæði nemenda og kennara.
Liðið stóð sig frábærlega vel og nú hlökkum við til að fylgjast með þeim í úrslitakeppninni.