Í dag keppir lið Egilsstaðaskóla í Skólahreysti á Akureyri. Keppnin hefst klukkan 17.00 og er bein útsending á RÚV. Liðið er skipað nemendum úr 9. og 10. bekk, þeim Þórleifi Hólm Gissurarsyni, Söru Pétursdóttur, Kristínu Indíönu Káradóttur og Szymon Horodejczuk. Varamenn eru Bríet Krista Sigþórsdóttir og Óskar Ernir Guðmundsson. Þjálfari liðsins er Valgeir Sveinn Eyþórsson íþróttakennari en krakkarnir hafa undirbúið sig fyrir keppnina frá því í janúar.
Hópur stuðningsfólks fer norður í dag til að styðja við liðið og hvetja!
Hlökkum til að fylgjast með frábæra fólkinu okkar.