Árlega er haldin námstefna um Byrjendalæsi á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Á þessum námstefnum koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi auk annars áhugafólks um læsi á yngsta stigi grunnskóla.
Í ár var námsstefnan tileinkuð Rósu Eggertsdóttur fræðikonu, menntafrumkvöðli og höfundi Byrjendalæsis. Veittar voru viðurkenningar og úthlutað úr minningarsjóði Rósu í fyrsta sinn til framúrskarandi læsiskennara. Einn þeirra kennara sem fékk viðurkenningu var Drífa Magnúsdóttir umsjónarkennari og leiðtogi Byrjendalæsis í Egilsstaðaskóla.
Drífa hefur verið leiðtogi Byrjendalæsis frá því að farið var að kenna eftir aðferðinni árið 2014. Hún hefur verið framúrskarandi leiðtogi, fylgst með nýjungum og þróun í Byrjendalæsi, sem og á öðrum sviðum. Hún er öflug fyrirmynd fyrir aðra kennara á yngsta stigi en hún er faglega mjög sterk og hefur lagt mikla áherslu á að leggja góðan grunn í námi barnanna sem hún kennir.
Við erum stolt af því að hafa Drífu Magnúsdóttur, framúrskarandi Byrjendalæsiskennara, í okkar röðum í Egilsstaðaskóla.