Miðvikudaginn 9. september verða kynningar á vetrarstarfinu fyrir foreldra og forsjárfólk barna í Egilsstaðaskóla. Dagskráin hefst með því að deildarstjórar stoðþjónustu, Ingunn Heiðdís og Hlín, kynna starf tengiliða farsældar í skólanum.
Að því loknu kynna umsjónarkennarar árganga helstu áherslur vetrarins. Fundunum er skipt niður eftir stigum:
1. - 4. bekkur kl. 16.30
5. - 7. bekkur kl. 17.30
8. - 10. bekkur kl. 18.30
Reiknað er með að fundirnir taki um klukkustund í heildina.
Foreldrar og forsjárfólk er hvatt til að mæta!