Kynjaverur og furðudýr

Litríkasti dagur skólaársins er í dag. Öskudagurinn einkenndist af gleði og samvinnu en í upphafi dags hittumst vinabekkir og gerðu ýmislegt skemmtilegt saman.

Foreldrafélag Egilsstaðaskóla stóð fyrir skemmtun í íþróttahúsinu fyrir nemendur í 1. - 4. bekk þar sem boðið var upp á þrautabraut og allir gátu reynt að slá köttinn úr tunnunni.

Nemendur á miðstigi og elsta stigi voru áfram í skólanum í alls konar leikjum. Um hádegi lauk skóladeginum og krakkarnir skunduðu út í vetrarfrí. Væntanlega hafa einhverjir gert sér ferð í í fyrirtæki og stofnanir í bænum til að næla sér í gotterí eins og vera ber á þessum degi.