Hvað læra 10. bekkingar um fjármál?

Í mars hafa nemendur í 10. bekk fjallað um fjármál og ýmislegt í tengslum við þau. Í aðalnámskrá stendur hæfniviðmið sem tekur á þessu viðfangsefni og hljóðar svo: Við lok 10. bekkjar getur nemandi nýtt helstu hugtök fjármála, í tengslum við eigin fjármál, launagreiðslur, skatta og fjárfestingar og nýtt við útreikninga og úrlausnir verkefna daglegs lífs.
Krakkarnir fengu fræðslu frá Arion banka og VR; Þau tóku þátt í Fjármálaleikunum, sem er fræðsluverkefni á vegum Fjármálavits en það er í eigu Samtaka fjármálafyrirtækja. Nemendur í 50 grunnskólum á landinu tóku þátt í Fjármálaleikunum í ár. Á vefsvæði Fjármálavits eru ýmsar hagnýtar upplýsingar um fjármálafræðslu fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum. Einnig unnu krakkarnir stór lokaverkefni þar sem þau völdu sér viðfangsefni. Þar var val um nokkur viðfangsefni, t.d. hvað kostar að reka fjölskyldu í eitt ár, hvað kostar að taka bílpróf í eitt ár, hvað kostar að eignast eigið húsnæði. Verkefnið reyndi á kunnáttu í excel-forritinu.
Krakkarnir voru mjög áhugasöm í þessari vinnu, sem fól m.a. í sér að skoða launaseðla og velta fyrir sér ýmsum hugtökum í tengslum við fjármál. Von er á fræðslu frá fleiri stéttarfélögum fyrir skólalok enda er mikilvægt fyrir krakkana að þekkja til þess hvaða réttindi og skyldur hvíla á herðum atvinnurekenda og launþega.