Hvað er nefnuhraði? Og hvað er atkvæði? Hver er munurinn á lesfimi og lestrarnákvæmni? Þessum spurningum er svarað í litlu hefti um hugtök í tengslum við lestrarkennslu og lestur sem Drífa Magnúsdóttir umsjónarkennari og leiðtogi í Byrjendalæsi hefur tekið saman.
Í heftinu eru einnig komið með dæmi um hvernig hægt er að stuðla að auknum málþroska barna sem er undirstaða þess að geta tileinkað sér lestur og lesskilning. Allt er þetta þýðingarmikið fyrir einstaklinga til að geta átt samskipti við aðra og geta numið upplýsingar í margskonar formi.
Heftið er aðgengilegt í meðfylgjandi tengli: Hugtök í tengslum við lestrarkennslu og lestur