Hér í Kardemmommu okkar líf er yndislegt

Krakkarnir í 3. og 4. bekk sýndu Kardemommubæinn á árshátíð sinni í liðinni viku. Ræningjarnir, Soffía frænka, Bastían bæjarfógeti, ljónið og auðvitað allir íbúarnir í Kardemommubæ, léku við hvern sinn fingur.
Margir leggja hönd á plóg við undirbúning árshátíðar; Umsjónarkennarar æfðu krakkana og höfðu umsjón með skreytingum í sal og leikskrá. Þórarinn húsvörður smíðaði nýjan turn Tóbíasar og umsjónarkennari í 4. bekk málaði hann. Foreldrar aðstoðuðu börnin við að finna búninga.

Við erum afar þakklát kennurum í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum, þeim Berglindi Halldórsdóttur, Margréti Láru Þórarinsdóttur og Bríeti Finnsdóttur, fyrir aðstoð við æfingar á söngatriðum.
Krakkarnir voru mjög ánægð með sýninguna og var vel fagnað í lokin af fullum sal áhorfenda.