Háskólalestin heimsækir Egilsstaðaskóla

Það var okkur mikil ánægja að taka á móti Háskólalestinni í dag. Kennarar og fræðafólk frá Háskóla Íslands mætti í Egilsstaðaskóla í morgun og buðu upp á fjölbreyttar smiðjur. Nemendur úr 7. - 10. bekk tóku þátt í starfi Háskólalestarinnar og sýndu mikinn áhuga á því sem í boði var. Meðal þess sem krakkarnir fræddust um voru japönsk fræði, blaða- og fréttamennska, jarðfræði, stjörnufræði, íþrótta- og heilsufræði og skurðlækningar. Í verklegum smiðjum var boðið upp á eðlisfræði skopparabolta og pappírsbáta, lífprent og svo var tæknismiðja þar sem búin voru til vélmenni. Hluti kennslunnar fór fram utandyra en krakkarnir æfðu sig í að skjóta upp vatnsflaugum! Það var mjög ánægjulegt að sjá hve virkan þátt krakkarnir tóku í smiðjunum. Í smiðju um skurðlækningar mátti heyra saumnál detta á meðan kennarinn sýndi hvernig ætti að sauma saman sár og á eftir fengu krakkarnir sjálf að prófa að sauma í gervihúð.

Það og margt annað verður boðið upp á á Opnu vísindahúsi Háskólalestarinnar í Egilsstaðaskóla fimmtudaginn 30. apríl, kl. 16.00 - 18.00. Allir eru hjartanlega velkomnir að koma og upplifa vísindi og fræði með kennurum og fræðafólki Háskóla Íslands.