Á starfsdegi og nemendaviðtalsdegi hefur starfsfólk skólans setið námskeið hjá tveimur klínískum atferlisfræðingum. Felix Högnason leiðbeindi kennurum og stuðningsfulltrúum um varnarviðbrögð þegar starfsfólkið mætir nemendum sem beita ofbeldi eða ógnandi hegðun. Með því að bregðast rétt við getum við forðað því að starfsfólk eða nemendur meiðist þegar nemandi er í ójafnvægi og beitir ofbeldi.
Katrín Sveina Björnsdóttir eigandi Hegðunarlausna hefur veitt ráðgjöf í skólanum á undanförnum árum og var nú með námskeið fyrir stuðningsfulltrúa og kennara í stoðþjónustu um birtingarmyndir hegðunar og hvernig er hægt að bregðast við erfiðri hegðun barna.
Þessi fræðsla er mikilvæg fyrir starfsfólk skólans til að hægt sé að mæta fjölbreyttum nemendahóp betur.