Miðvikudaginn 2. september er stefnt að göngudegi. Þá ganga nemendur og starfsfólk skólans á ýmsa staði á Fljótsdalshéraði og eru gönguleiðir valdar með tilliti til aldurs og getu nemenda.
Dagurinn er uppbrotsdagur og þá er skólastarfið óhefðbundið. Nemendur í 1. - 4. bekk koma tilbaka í skólann fyrir hádegismat og ljúka skóladeginum með umsjónarkennurum. Frístund tekur svo við fyrir þá nemendur sem eru skráðir þar.
Nemendur í 5. - 10. bekk fara heim þegar þau koma tilbaka í skólann og er það á mismunandi tímum. Síðast koma þeir sem ganga í Stórurð.
1. bekkur gengur í Sigfúsarlund, 2. bekkur gengur að Klofasteini, 3. bekkur gengur í Egilsstaðavík, 4. bekkur gengur á Hrafnafell, 5. bekkur gengur að Grettistaki, 6. bekkur gengur að Fardagafossi, 7. bekkur gengur í Valtýshelli, 8. bekkur gengur í Bjargselsbotna, 9. bekkur gengur í Stapavík og 10. bekkur gengur í Stórurð. Ferðin hefst í rútu hjá þeim sem hefja gönguna langt frá skólanum.
Krakkarnir þurfa að koma klædd eftir veðri og á góðum skóm. Allir þurfa að taka með sér hollt nesti og passa að gleyma ekki drykkjum.
Foreldrum og forsjárfólki er velkomið að slást í hópinn í göngunum en ekki er hægt að lofa plássi í rútunum.