Fyrstu bekkingar fagna fyrstu 100 dögunum í skólanum

Í vikunni fögnuðu nemendur í 1. bekk því að þau hafa verið í skólanum í 100 daga. Krakkarnir mættu í náttfötum, skrifuðu orð og setningar um það sem þeim finnst best við skólann, bjuggu til kórónur, höfðu bíó og fengu ís.
Þessir yngstu nemendur skólans þroskast mikið þessa fyrstu mánuði í grunnskóla og hafa á 100 dögum lært margt nýtt. Enda voru þau mjög stolt af áfanganum og nutu þess að gera sér dagamun.