Alþjóðlega stærðfræðikeppnin Pangea er haldin í ríflega 20 löndum en markmið hennar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði og hvetja þau til dáða með því að sýna þeim hve mikið er hægt að afreka ef fólk reynir.
Nemendur í 8. og 9. bekk tóku þátt í tveimur undankeppnumí skólanum og tveir nemendur var boðið í úrslitakeppni í Reykjavík. Þeir Bjarki Jónsson og Friðjón Bragi Tómasson voru fulltrúar Egilsstaðaskóla í keppninni sem var haldin um helgina. Við óskum þeim innilega til hamingju með góðan árangur í keppninni.
Þeir sem vilja fræðast meira um Pangea keppnina er bent á heimasíðu hennar www.pangeakeppni.is