Frjáls framlög í sviðslistasjóð

Í dag er þriðja árshátíð skólaársins þegar nemendur í 3. og 4. bekk sýna Dýrin í Hálsaskógi. Það er ekki selt inn á árshátíðir í Egilsstaðaskóla en gestum er boðið að leggja til frjáls framlög sem hafa runnið í sviðslistasjóð skólans.
Á þessu skólaári og því síðasta hefur verið hægt að kaupa hljóðnema, bæði lausa og á gólf, auk monitora sem eru notaðir á sýningum og viðburðum í skólanum.
Það munar sannarlega um þessa viðbót í tækjakost skólans og við erum afar þakklát fyrir þessi framlög gesta sem koma að góðum notum.