Á unglingastigi Egilsstaðaskóla hefur verið unnið að lýðræðis- og kosningaverkefni upp á síðkastið. Hluti af verkefni var að kynna sér þau framboð sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Múlaþingi og semja spurningar til frambjóðenda.
Í morgun, fimmtudaginn 7. maí, mættu svo fulltrúar allra framboðanna í Egilsstaðaskóla og sátu fyrir svörum í matsal skólans. Rakel Wium Ágústsdóttir, nemandi í 10. bekk, stýrði fundinum af röggsemi og bauð frambjóðendur velkomin. Hún skýrði fyrir þeim fyrirkomulag fundarins og bauð þeim í kjölfarið að kynna sig og sitt framboð, en hver frambjóðandi hafði þrjár mínútur til þess. Nemendur spurðu því næst frambjóðendur spurninga sem höfðu verið undirbúnar fyrirfram og frambjóðendur höfðu mínútu til að svara hverri spurningu.
Að lokum fengu frambjóðendur öll spurninguna “Hver í flokknum myndi lifa af í Survivor?” sem vakti mikla kátínu.
Rakel þakkaði þá frambjóðendum fyrir góðan fund og þau hlutu lófatak fyrir vasklega framgöngu. Þeir frambjóðendur sem mættu á fundinn voru Ásrún Mjöll Stefánsdóttir fyrir Vinstri græn og óháð, Einar Freyr Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Hólmfríður Rut Einarsdóttir fyrir Austurlistann og Viðreisn, Jóhann Harðarson fyrir Miðflokkinn og Þórey Birna Jónsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn.
Nemendur í 8.-10. bekk stóðu sig ekki síður frábærlega, það var gott hljóð á meðan frambjóðendur tjáðu sig og spurningarnar voru vel úthugsaðar og skemmtilegar.