Árlegur útivistardagur nemenda og starfsfólk í 1. - 4. bekk var á dögunum. Árgangarnir fóru á mismunandi staði þar sem ýmis verkefni biðu þeirra. Fyrsti bekkur var í Tjarnargarðinum þar sem þau fóru í útibingó, frisbí og sköpuðu snjólistarverk ásamt fleiru.
Annar bekkur var við Samfélagssmiðjuna þar sem þau fengu að fara á hestbak, bjuggu til mandölur og spiluðu samstæðuspil svo dæmi séu tekin.
Þriðji bekkur var í Selskógi þar sem þau fóru í ratleik sem reyndi á ýmsa færni s.s. náttúruþekkingu og hreyfingu.
Fjórði bekkur varði deginum við Lagarfljót þar sem krakkarnir unnu að sandlistaverkum og máluðu myndir með vatnslitum.
Dagurinn þótti takast vel og krakkarnir komu glaðir tilbaka í skólann.