Blómin á þakinu dafna

Nemendur í 2. bekk héldu uppskeruhátíð á fjölbreyttum verkefnum í tengslum við vinnu með bókina Blómin á þakinu.
Verkefnið er samþætt í íslensku, samfélagsfræði, náttúrufræði og við list- og verkgreinar og hefur verið unnið á undanförnum vikum.
Það var mikill metnaður í verkefnum krakkanna sem voru í formi texta, teikninga, smíðisgripa, textílverka og skrauthluta úr leir auk þess sem þau unnu verkefni í heimilisfræði í tengslum við lestur bókarinnar.
Sagan um Gunnjónu er eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur og myndskreytt af Brian Pilkington og fjallar um flutning fullorðinnar konu úr sveit í borg. Umskiptin reyna á Gunnjónu en hún er lausnamiðuð og smám saman tekst henni að aðlagast borgarlífinu með góðra vina hjálp.