Fjórða og síðasta árshátíð Egilsstaðaskóla fór fram í vikunni. Yngstu nemendur skólans, í 1. og 2. bekk, sýndu Kardemommubæinn fyrir stappfullu húsi. Sumir voru að stíga sín fyrstu skref á sviði og stóðu sig með mikilli prýði. Það liggur misvel fyrir 6 og 7 ára gömlum börnum að standa á sviði fyrir framan fullan sal af fólki og því þurfa margir að fara útfyrir þægindaramma sinn í verkefnum sem þessum. Og gleðin var einlæg hjá leikurunum að sýningunni lokinni sem streymdu af sviðinu til fjölskyldna sinna.
Að venju tóku margir þátt í að undirbúa sýninguna; bekkjarteymi 1. og 2. bekkjar með umsjónarkennara í fararbroddi báru meginþungann af sviðsetningunni með aðstoð starfsfólks skólans sem aðstoðaði við gerð sviðsmyndar og ýmislegt tilfallandi. Nemendur úr 5. bekk voru tæknimenn á sýningunni og stóðu sig feikilega vel.
Kennarar í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum, Berglind, Margrét Lára og Bríet undirbjuggu börnin fyrir söngatriði og Berglind stjórnaði söngatriðum í sýningunni. Fyrir það eru við í Egilsstaða mjög þakklát.
Árshátíðarvinnan er skemmtileg og gefandi en oft á tíðum krefjandi þar sem þá reynir á aðra þætti hjá nemendum en inni í kennslustofum. Þessi reynsla og lærdómur er ekki síður mikilvægur en vinna í námsbókum og margir búa að því að hafa tekið þátt í sviðsetningum á leikritum í grunnskóla.