Aðlögun námsefnis með hjálp gervigreindar – þróunarverkefni

Skólaárið 2025-2026 var unnið að þróunarverkefninu Aðlögun námsefnis með hjálp gervigreindar.  Verkefnið var styrkt af Sprotasjóði.

Markmið verkefnisins var að efla þekkingu kennara á því hvernig nýta megi gervigreind í kennslu, verkefnagerð og undirbúningi. Sérstök áhersla var lögð á aðlögun námsefnis að ólíkum þörfum nemenda.

Verkefnið fólst í tveimur námskeiðum og að veita kennurum aðgang að gervigreindartólinu Viskubrunni svo að þeir gætu prófað sig áfram. Til að meta stöðu og þróun verkefnisins voru lagðar fyrir þrjár kannanir meðal kennara yfir skólaárið.
Niðurstöðurnar sýna að verkefnið skilaði góðum árangri. Í upphafi skólaárs höfðu 60% kennara prófað að nota gervigreind í starfi sínu en í lok þess var hlutfallið komið í 89%. Regluleg notkun jókst einnig og fleiri kennarar fóru að nýta gervigreind við undirbúning, hugmyndavinnu, verkefnagerð, einföldun texta og þýðingar.
Sérstaklega má sjá árangur í aðlögun námsefnis. Í ágúst sögðust 25% kennara nota gervigreind í þeim tilgangi en í maí var hlutfallið komið í 64%. Kennarar nefndu meðal annars að gervigreind hefði nýst við að búa til verkefni á mismunandi þyngdarstigum, stytta og einfalda texta, útbúa spurningar og aðlaga verkefni fyrir nemendur sem þurfa aukinn stuðning.

Verkefnið hefur einnig stuðlað að mikilvægri faglegri umræðu um ábyrga notkun gervigreindar, gæði efnis, gagnrýna yfirferð og notkun nemenda á slíkum tólum. Næstu skref verða meðal annars að halda áfram að efla kennara í notkun gervigreindar, deila góðum dæmum og móta sameiginleg viðmið um ábyrga notkun.