Árleg vorferð 5.bekkinga í Fljótsdalinn var farin í vikunni. Krakkarnir heimsóttu Fljótsdalsstöð, Skriðuklaustur og Snæfellsstofu Á öllum stöðum var vel tekið á móti hópnum og þau fengu kynningu á því sem gert er á hverjum stað.
í Fljótsdalsstöð var sagt frá virkjuninni og ekið inn í fjallið á rútunni.
Á Skriðuklaustri var sagt frá Gunnari Gunnarssyni rithöfundi, tilurð hússins á Skriðuklaustri og starfsemi Gunnarsstofnunar. Krakkarnir rituðu nöfn sín á gestabókarrefil og gæddu sér á nýbökuðum kleinum.
Í Snæfellsstofu var leiðsagt um sýningu og sagt frá Vatnajökulsþjóðgarði en fyrr í vetur kom landvörður í heimsókn til 5. bekkjar og sagði frá þjóðgarðinum.
Allir sem tóku á móti hópnum fá bestu þakkir fyrir góðar móttökur og fróðlega leiðsögn.