Val á elsta stigi

Nemendur í 8.-10. bekk skulu samkvæmt grunnskólalögum nr. 91/2008 eiga kost á vali um námsgreinar, allt að 1/5 af námstíma á hverjum vetri.
Frjálst val á elsta stigi í Egilsstaðaskóla er 4 kennslustundir á viku. Valið er um tvö mismunandi námskeið; annað kennt á þriðjudögum og hitt á fimmtudögum. Valinu er skipt upp í 4 tímabil og er hvert tímabil 7 til 9 vikur.
Í dag var kynnt fyrir nemendum í 8. - 10. bekk hvaða námskeið eru í boði á valtímabili 1 sem nær fram í nóvember. Eitt af því sem er í boði er þátttaka í uppsetningu á söngleiknum Mamma mia sem verður sýndur 12. nóvember. Það hefur ávallt verið mjög vinsælt hjá nemendum að taka þátt í árshátíð en auk þess er boðið upp á sviðsmyndagerð fyrir árshátíðina, heimilisfræði, pílu og golf, Skólahreystival, kvikmyndir, mottugerð, þátttöku í Nemendaráði og síðast en ekki síst Lego en í því vali búa nemendur sig undir þátttöku í keppninni First Lego League sem verður haldin 13. nóvember í Reykjavík.


Heimilt er skv. grunnskólalögum að meta skipulagt nám, sem er stundað utan skólans t.d. við tónlistarskóla, sem hluta af frjálsu vali. Auk þess er heimilt að meta þátttöku í félagslífi, íþróttum eða skipulögðu sjálfboðaliðastarfi. Þetta fellur undir svokallað utanskólaval. Nemendur hafa þá frjálsar hendur með hvenær þeir skila þeim tímum sem falla undir utanskólavalið og er það ekki bundið við tímana kl. 13.50 – 15.10 á valdögum en skóla lýkur fyrir þessa nemendur kl. 13.40 á því tímabili sem utanskólavalið er valið. Í valbæklingi, sem er birtur á heimasíðu, undir flipanum Nám og kennsla - Val í 8. - 10. bekk er utanskólaval nánar útskýrt og hvernig er reiknað út hve oft nemendur geta fengið að vera í utanskólavali.
Kennsla í vali hefst 8. september.