Lið Egilsstaðaskóla keppti í úrslitum Skólahreysti

Lið Egilsstaðaskóla keppti í úrslitakeppni Skólahreysti í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Liðið stóð stig með mestu prýði og hafnaði í 7. sæti en alls kepptu 12 lið til úrslita.
Vaskur hópur stuðningsmanna keyrði til Reykjavíkur að morgni laugardags og beint til baka að keppni lokinni og þá bættust keppendur í hópinn.

Við erum mjög stolt af því að liðið okkar komst í úrslitakeppnina og óskum þeim hjartanlega til hamingju með góðan árangur. Þjálfarar liðsins, þeir Adam Eiður Ásgeirsson og Kristófer Páll Viðarsson fá sömuleiðis þakkir fyrir gott starf og Austur fyrir að gera okkur kleift að nýta góða æfingaaðstöðu þeirra. Hlökkum til næstu Skólahreystikeppni!