Undanfarið hafa krakkarnir í 4. bekk unnið fjölþætt verkefni um landnám Íslands. Verkefnið er samþætt við vinnu í list- og verkgreinum og afraksturinn í formi hluta sem krakkarnir hafa búið til, myndefnis, leikþátta og upplýsingatexta.
Landnámsmennirnir sigldu til Íslands og krakkarnir gerðu myndir af skipunum, fólkinu og búsmalanum sem komu með til landsins. Þau smíðuðu viskuskrín og í þeim eru rúnir, uppskrift af lummum, spjaldofin bönd og fleira fallegt.
Það voru líka gerðir leikþættir um landnámsfólkið og hver hópur sýndi sinn leikþátt. Auk þess kynntu krakkarnir sér íslenska fugla og gerðu veggspjöld um þá.
Meðfylgjandi eru myndir af verkefnum á sýningunni