Hvernig getur stærðfræði nýst okkur?

Hvernig getur við nýtt stærðfræði í daglegu lífi?
Krakkarnir í 10. bekk unnu verkefni sem fólst í því að mæla upp herbergin þeirra og hanna svo módel í minnkaðri stærð. Módelin voru fjölbreytt og afar mismunandi útfærð, með mismiklum smáatriðum, allt eftir smekk hvers og eins. Krakkarnir sýndu uppmælingarnar og svo útreikningana sem þau gerðu til að minnka hlutföllin. Allt getur þetta reynst þeim vel í framtíðinni