Heimabyggðin

Veljið ykkur svæði á Fljótsdalshéraði sem ykkur finnst þurfa að breyta og endurbæta. Þannig hljóðaði verkefnalýsing krakkanna í 10. bekk sem unnu verkefni sem kallast heimabyggðin. Í vikunni sýndu nemendur afrakstur vinnunnar í formi módela og vinnulýsinga. Það voru fjölbreyttar útfærslur á nokkrum svæðum á Héraði; Gokart braut við hliðina á Landsnetshúsinu, íbúðabyggð með göngugötu á garðalosunarsvæðinu, ýmsar útfærslur á svæðum við ME, kirkjuna og á nesinu, bátaleiga og fleira í Atlavík og fleiri hugmyndir voru sýndar. Krakkarnir lögðu mörg áherslu á sjálfbærar lausnir t.d. með því að hafa sólarsellur á þökum og lítil vatnsvirkjun.
Það er alltaf gaman að sjá hversu fjölbreyttar hugmyndir koma frá nemendum í þessari hugmyndavinnu og hvað þau eru yfirleitt virk í verkefninu.
Foreldrum & forsjáraðilum auk sveitarstjóra og sveitarstjórnarfulltrúum var boðið að koma og skoða verkefnin og krakkarnir útskýrðu hugmyndirnar fyrir gestunum. Meðfylgjandi eru myndir sem sýna fjölbreytileikann.