Mánudaginn 18.maí fór 9.bekkur í vorferð til nágranna okkar í Fjarðabyggð. Stríðsárasafnið á Reyðarfirði var heimsótt, en nemendur hafa í vetur lært um Seinni heimstyrjöldina og stríðsárin á Íslandi. Árni Pétur Árnason, verkefnastjóri Menningarstofu Fjarðabyggðar, tók á móti hópnum og sagði þeim frá safninu og svaraði spurningum. Næst var haldið á Norðfjörð og stoppað við minningarreit um snjóflóðin í Neskaupstað þar sem nemendur fræddust um flóðin og hörmulegar afleiðingar þeirra, auk þess að skoða snjóflóðavarnargarða. Nesti var snætt á bryggjunni við Safnahúsið í Neskaupstað í ágætu veðri. Eftir stutta kynningu á söfnum í Safnahúsinu fengu nemendur frjálsar hendur og gátu skoðað söfnin í samræmi við áhuga.
Menningarstofa Fjarðabyggðar fær bestu þakkir fyrir móttökurnar. Nemendur fá einnig hrós fyrir áhuga og þakkir fyrir skemmtilega samveru.