Samþætting

Með samþættingu námsgreina er horft til verkefna sem hafa snertifleti við margar námsgreinar. Þannig má gera námið merkingarbærara fyrir nemendur og skýra samhengi mismunandi fræðasviða. Aukin áhersla á samþættingu er í takt við áherslur aðalnámskrár. Stefna skólans er að auka samþættingu námsgreina.   Á yngsta stigi er unnið eftir aðferðafræði Byrjendalæsis þar sem lestrarnám er samþætt öðrum greinum.  Á miðstigi vinna nemendur ýmis samþættingarverkefni milli bóknáms og verknáms. Ber þar hæst samstarf árgangahópa við list- og verkgreinakennara. Verkefnin eru misviðamikil. Dæmi um viðamikil verkefni eru samþættingarverkefni tengd náttúrufræði í 6.bekk og víkingaverkefnið í 4.bekk.